Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Lyfjaprófunarhópur 2013

15.02.2013Samkvæmt Alþjóða lyfjareglunum ber þeim sem fara með lyfjaeftirlit meðal íþróttamanna að stofna skráðan lyfjaprófunarhóp. Í hópnum eiga að vera fremstu íþróttamenn hvers lands. Við val á einstaklingum er tekið mið af stöðu viðkomandi á heimslista og þátttöku á stórum Alþjóðlegum mótum. Meðal þeirra upplýsinga sem íþróttamennirnir þurfa að skila er keppnisáætlun fyrir tímabilið auk upplýsinga um hvar og hvenær æft er. Íþróttamönnunum ber að tilgreina klukkustund dag hvern sem hentar vel til lyfjaprófunar. Markmiðið með því að stofna slíkan hóp er að auðvelda lyfjaprófun utan keppni á okkar besta íþróttafólki.

Lyfjaeftirlitsnefnd hefur valið eftirtalda íþróttamenn í skráðan lyfjaprófunarhóp fyrir árið 2013.
Auðunn Jónsson, kraftlyftingamann Breiðabliki
Ásdísi Hjálmsdóttur, spjótkastara Ármanni
Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamann Skotfélagi Reykjavíkur
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkonu Ægi
Jón Margeir Sverrisson, sundmann Ösp/Fjölni

Auk þeirra íþróttamanna er taldir eru upp hér að ofan skila landslið Íslands í knattspyrnu og handknattleik karla og kvenna  upplýsingum vegna æfinga og keppna.

Íþróttamennirnir eða fulltrúar þeirra þurfa að skila upplýsingum um staðsetningar ársfjórðungslega á árinu. Íþróttamennirnir koma upplýsingunum til skila með ADAMS vefforriti sem Alþjóða lyfjaeftirlitið hefur þróað. Brot á reglum um skil á staðsetningarupplýsingum geta verið að upplýsingum sé ekki skilað innan tilskilins tíma, að upplýsingar sem skilað er séu ekki réttar eða ófullnægjandi, að íþróttamaður missi af lyfjaprófi sé hann ekki til staðar á uppgefnum stað og tíma og ekki er hægt að hafa uppá honum í lyfjapróf án fyrirvara. Brot á einhverju af framangreindu getur haft áminningu í för með sér, þrjár áminningar á 18 mánaða tímabili geta leitt til málsókn fyrir dómstóli ÍSÍ. Dómar vegna brota á skilum á staðsetningarupplýsingum geta haft í för með sér 12-24 mánaða útilokun frá æfingum og keppni.