Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Lífshlaupið fór af stað í morgun

01.02.2017

Mikil gleði ríkti í íþróttahúsi Holtaskóla í morgun þegar Lífshlaupið var ræst í tíunda sinn. Við þetta tækifæri var verkefninu Heilsueflandi samfélag ýtt úr vör í Reykjanesbæ.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Eðvarð Þór Eðvarðsson, skólastjóri Hamraskóla og Hafsteinn Pálsson formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ávörpuðu gesti og kepptu í skemmtilegri þraut í anda Skólahreystis sem Andrés Guðmundsson stýrði af sinni alkunnu snilld.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna með það að markmiði að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. Skráning í Lífshlaupið fer fram hér.

ÍSÍ hvetur alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á sínum vinnustað eða í sínum skóla.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is, eða í síma: 514-4000. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið lifshlaupid@isi.is.

Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: Advania, Rás 2 og MS.

Fleiri myndir má sjá á myndasíðu ÍSÍ.

Myndir með frétt