Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

LA, París eða Búdapest

17.02.2017

Þrjár borgir keppast um að halda Ólympíuleikana árið 2024. Þær borgir sem sóttu um að halda leikana eru Búdapest í Ungverjalandi, Hamborg í Þýskalandi, Los Angeles í Bandaríkjunum, París í Frakklandi og Róm á Ítalíu. Nú hafa tvær borgir dregið sig úr keppninni um að halda leikana, Hamborg og Róm. 100 meðlimir Alþjóðaólympíunefndarinnar munu kjósa á milli þessarra borga þegar nefndin mun funda í Líma í Perú 13. september 2017. 

Borgirnar eru nú allar með glæsilegar vefsíður í tengslum við baráttuna um að halda leikana.

Vefsíðu LA má sjá hér

Vefsíðu Búdapest má sjá hér.

Vefsíðu Parísar má sjá hér.

Tíðkast hefur að í lokin á vali á borg sem heldur Ólympíuleikana komist tvær borgir í úrslit. Þeim reglum hefur nú verið breytt og komast nú allar borgirnar í lokakosninguna. Alþjóðaólympíunefndin mun halda áfram nánu samstarfi við fulltrúa hverrar borgar fyrir sig og bjóða upp á bestu mögulegu þjónustu og aðstoð fram að kosningunni.

Ólympíuleikarnir hafa tvisvar verið haldnir í Los Angeles í Bandaríkjunum, árið 1932 og 1984. París laut í lægra haldi fyrir London í baráttunni um leikana 2012. Ólympíuleikarnir fóru fram í París árið 1900 og 1924. Leikarnir hafa aldrei verið haldnir í Ungverjalandi, en þjóðin er ein af þeim sigursælustu á Ólympíuleikunum. 

Spennandi verður að fylgjast með gangi mála í framhaldinu, en niðurstaðan verður hins vegar ekki ljós fyrr en í september 2017. Hægt er að fylgjast með fréttum á heimasíðunni www.olympic.org

 

Myndir með frétt