Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

PyeongChang 2018 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu

08.02.2018

Í dag var íslenski hópurinn boðinn velkominn í Ólympíuþorpið í PyeongChang. Sérstakar móttökuhátíðir eru haldnar dagana fram að setningarhátíð og var slík hátíð í dag þar sem þátttakendur frá Gana, Liechtenstein, Íslandi, Ekvador og Kosóvó voru boðnir velkomnir.
Á hátíðinni var íslenski fáninn dreginn að hún og þjóðsöngurinn leikinn.  Andri Stefánsson, aðalfararstjóri íslenska hópsins skiptist á gjöfum við borgarstjóra Ólympíuþorpsins í PyeongChang og skrifaði að því loknu nafn sitt á friðarvegginn í þorpinu sem vígður var af Thomas Bach, forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) fyrr í vikunni. 
Gjöf íslenska hópsins var keramikegg hannað af listakonunni Koggu, en eggið kallast Móðir jörð.  Gjöf borgarstjórans til ÍSÍ var listaverk, eftirlíking af frægum grip frá 7. öld sem framleiddur er í takmörkuðu upplagi vegna Vetrarólympíuleikanna 2018.
Undir lok hátíðarinnar var þjóðlegur trommusláttur og hátíðinni lauk með því að dansarar sýndu listir sínar og drógu þátttakendur með í dans undir taktfastri tónlist.
Íslenski hópurinn nýtti tímann fyrir hópmyndatöku auk þess sem að alþjóðlegir fjölmiðlar tóku viðtöl við keppendur.
Á morgun verða leikarnir settir formlega en þó er hafin keppni í nokkrum greinum, þ.e. undankeppni eða riðlakeppni. Engir keppendur munu hafa lokið keppni á leikunum áður en setningarhátíðin fer fram.

Myndir frá leikunum má sjá á myndasíðu ÍSÍ.

Myndir með frétt