Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Styrkur til félaga

14.09.2018

Íþrótta- og ungmennafélögum stendur til boða að sækja um styrk að upphæð 180.000 krónur til að standa fyrir verkefni sem hvetur börn af erlendum uppruna til þátttöku í íþróttastarfi. Fimm styrkir verða í boði. Til þess að hljóta styrk þurfa félög að skila áætlun um hvernig nýta á fjármagnið. Tímarammi verkefnisins er frá september 2018 og til áramóta. Eftir að verkefnunum lýkur munu ÍSÍ og UMFÍ safna saman gögnum frá þeim félögum sem hljóta styrk og deila reynslunni áfram til annarra félaga í landinu. Saman getur íþróttahreyfingin hjálpast að, miðlað reynslu og þekkingu og gert gott starf enn betra. 

Smelltu hér til þess að sækja um. Umsóknarfrestur er til 17. september nk. 

Vakin er athygli á nýútkomnum bæklingum sem hefur það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Hér má nálgast bæklingana