Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Þórhallur nýr formaður ÍHÍ

14.05.2019

Ársþing Íshokkísambands Íslands, Íshokkíþing, var haldið á Akureyri þann 11. maí síðastliðinn og þar var Þórhallur Viðarsson kosinn formaður.
Aðrir í stjórn ÍHÍ eru Guðrún Kristín Blöndal, Eggert Steinsen, Kristín Birna Fossdal, Pétur Elvar Sigurðsson, Óli Þór Gunnarsson og Elín Guðmundsdóttir. Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri, sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ. 

Á myndinni má sjá til vinstri, nýjan formann, Þórhall Viðarsson og til hægri er fráfarandi formaður, Helgi Páll Þórisson.