Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ólafur, Kristín og Anna sæmd Gullmerki ÍSÍ

20.05.2019

Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF, Kristín Guðmundsdóttir formaður sundnefndar ÍF og Anna Karólína Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi voru sæmd Gullmerki ÍSÍ við 40 ára afmælishóf Íþróttasambands fatlaðra sem fram fór í Súlnasal á Radisson Blu Hótel Sögu þann 18. maí sl. Sigríður Jónsdóttir 1. varaforseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, nældi Gullmerki ÍSÍ í þær Kristínu og Önnu Karólínu en Sigríði til fulltyngis var 2. varaforseti ÍSÍ, Hafsteinn Pálsson, en bæði voru þau fulltrúar ÍSÍ við afmælishófið. Ólafur Magnússon átti þess ekki kost að vera viðstaddur afmælishófið en honum verðura afhent Gullmerki ÍSÍ við fyrsta hentuga tækifæri.

Mynd/ Jón Björn: Sigríður Jónsdóttir, Þórður Árni Hjaltested, Hafsteinn Pálsson, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir við afhendingu Gullmerkis ÍSÍ á afmælishófi ÍF.