Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Skilafrestur umsókna til Ferðasjóðs íþróttafélaga

10.01.2020

Frestur til skila á umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga rennur út á miðnætti mánudaginn 13. janúar næstkomandi. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót.

ÍSÍ hvetur sambandsaðila sína til að senda inn umsóknir í sjóðinn. Sótt er um á svæði sjóðsins hér á síðunni eða með því að smella hér.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur á skrifstofu ÍSÍ, netfang halla@isi.is og sími 5144000.