Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Dagur í lífi Söru Rósar dansara

03.03.2020

Sara Rós Jakobsdóttir, margfaldur Íslands- og bikarmeistari í dönsum, tekur við ÍSÍ story á Instagrami ÍSÍ nk. fimmtudag, 5. mars.

Sara Rós keppir fyrir landslið Dansíþróttasambands Íslands ásamt dansfélaga sínum Nicoló Barbizi og eru þau búsett í Danmörku. Þau eru margfaldir Íslands- og bikarmeistari í Standard, Latin og 10 dönsum. Þau keppa reglulega á opnum mótum á vegum Alþjóðadansíþróttasambandsins (WDSF) sem gefa stig á heimslista, sem og heimsbikar-, Evrópubikar-, heims- og Evrópumeistaramótum í öllum dansgreinum (Standard, Latin og 10 dönsum). Á síðastliðnum árum hafa Sara og Nicoló náð glæsilegum árangri á alþjóðlegum mótum víðsvegar um heiminn. Árið 2018 komust þau  í úrslit á Evrópumeistaramóti í 10 dönsum og enduðu í 6. sæti. Þau eru fyrsta íslenska dansparið til að komast í úrslit á EM í fullorðins flokki á efsta getustigi og er það því glæsilegur árangur. Þau hafa einnig margoft verið í topp sætunum á alþjóðlegum mótum síðastliðin ár. Sara Rós og Nicoló voru kjörin dansarar ársins 2017 og 2018. Sara Rós náði einnig þeim árangri með Sigurði Má Atlasyni, en þau voru kjörin dansarar ársins 2008, 2009, 2010, 2012 og 2014.

Sara Rós ætlar að sýna fylgjendum ÍSÍ á Instagram hvernig dagur í sínu lífi er. Fylgstu með degi í lífi Söru Rósar á Instagram síðu ÍSÍ.

Instagram ÍSÍ má sjá hér.