Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Frábær stemmning í Breiðagerðisskóla í morgun

02.09.2020

Göngum í skólann var sett í Breiðagerðisskóla í morgun að viðstöddum góðum gestum. 

Þorkell Daníel Jónsson, skólastjóri byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ tók síðan við og flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. Borgarstóri, Dagur B. Eggertsson flutti stutt ávarp þar sem hann hvatti krakkana til að fá foreldra sína og forráðmenn til að ganga með sér í skólann. Því næst tók Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til máls og bað hún börnin um hjálp við að minna foreldra á umferðarreglurnar og að passa að foreldrar væru ekki símanum við aksturinn. Þá hvatti Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu nemendur og gesti til að velja öruggustu leiðirnar í og úr skóla. Lalli töframaður skemmti viðstöddum áður en aðstandendur verkefnisins, borgarstjóri, lögreglustjóri, forstjóri samgöngustofu, nemendur, starfsfólk og aðrir gestir gengu verkefnið formlega af stað. 

Skráning skóla í Göngum í skólann er í fullum gangi og á vefsíðu Göngum í skólann hér má skrá sinn skóla og skoða nánari upplýsingar um verkefnið.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífsstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Í ár tekur Ísland þátt í 14. skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir skóla að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 7. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 7. október.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

Vefsíða verkefnisins er www.gongumiskolann.is.

Myndir frá setningu Göngum í skólann má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ.

Myndir með frétt