Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

24

Reykjavíkurborg styður við íþrótta- og æskulýðsfélög vegna Covid-19

11.09.2020
 
Borgarráð samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um að veita íþrótta- og æskulýðsfélögum í Reykjavík sérstakan stuðning upp á 135 milljónir króna vegna tekjutaps sem skapast hefur vegna kórónuveirufaraldursins. Borgarráð hafði í lok mars samþykkt tillögur um aðgerðir og viðspyrnu í menningar-, íþrótta- og listalíf í borginni í samvinnu við félög þessara greina.
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) og Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hafa verið í samskiptum við íþrótta- og æskulýðsfélög í borginni til að kanna og greina áhrif Covid-19 faraldursins á starfsemi félaganna. Sérstaklega var horft til tekjutaps félaganna vegna útleigu á eigin mannvirkjum, aukins kostnaðar vegna reksturs barna- og unglingastarfs og viðhaldsóska félaga vegna eigin mannvirkja. Niðurstaða greiningar ÍTR og ÍBR var að faraldurinn hefur haft og mun hafa fjölþætt og neikvæð áhrif á rekstur og starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga í borginni.

ÍTR og ÍBR lögðu sameiginlega til við borgarráð að veittar yrðu 80 milljónir króna til að styrkja íþrótta- og æskulýðsfélög í borginni til að vega á móti tekjutapi vegna Covid-19. Ennfremur að veittar yrðu 55 milljónir króna til að mæta viðhaldsóskum félaganna. Samtals er stuðningurinn því 135 milljónir króna. ÍTR og ÍBR var falið að útfæra tillögur að styrkveitingum til einstakra félaga.

Í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar koma fram þakkir frá borgarstjóra til íþróttahreyfingarinnar, iðkenda og foreldra fyrir að taka frábærlega á málum og til ÍTR og ÍBR fyrir glögga greiningu á stöðunni.