Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Íþróttafólk Akureyrar 2021

05.02.2022

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2021 var lýst á verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi 3. febrúar 2022. 12 aðildarfélög ÍBA tilnefndu alls 32 íþróttamenn úr sínum röðum, 15 íþróttakonur og 17 íþróttakarla. Úr þeim tilnefningum var svo kosið á milli 10 karla og 10 kvenna sem stjórn Afrekssjóðs hafði stillt upp.  Á athöfninni veitti frístundaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar til 10 aðildarfélaga ÍBA vegna 310 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 10 afreksefnum styrki. Samtals hlutu 20 einstaklingar afreksstyrki fyrir samtals 5 milljónir á athöfninni.

Knattspyrnumaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason úr KA er íþróttakarl Akureyrar árið 2021 og skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA er íþróttakona Akureyrar 2021.

Aldís Kara er íþróttakona Akureyrar þriðja árið í röð. Aldís Kara, sem var valin skautakona ársins 2021 hjá Skautasambandi Íslands og íþróttakona Skautafélags Akureyrar setti Íslandsmet í janúar 2021 þegar hún hlaut 123.44 stig á RIG21. Í haust keppti Aldís á tveimur ISU Challenger Series mótum. Með góðum árangri á þessum mótum vann Aldís Kara sér inn keppnisrétt á Evrópumeistaramóti í listskautum, fyrst íslenskra skautara. Á Evrópumeistaramótinu, sem fór fram í Eistlandi í janúar 2022 hafnaði Aldís Kara í 34. sæti. Aldís Kara lauk árinu 2021 með því að slá eigið Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu sem haldið var í nóvember. Þar hlaut hún 136.14 stig sem er jafnframt hæstu stig sem gefin hafa verið í Senior flokki á Íslandi.

Brynjar Ingi er íþróttakarl Akureyrar í fyrsta skipti. Brynjar Ingi er uppalinn knattspyrnumaður úr KA og var valinn, annað árið í röð, Íþróttakarl KA í byrjun árs. Brynjar Ingi spilaði 11 leiki fyrir KA sem hafnaði í 4. sæti í efstu deild karla 2021. Frammistaða Brynjars Inga vakti mikla athygli og í júlí var Brynjar Ingi keyptur til Lecce í ítölsku B-deildinni. Með framgöngu sinni vann Brynjar Ingi sér inn fast sæti í A-landsliði karla á árinu, þar sem hann spilaði 10 A-landsleiki á árinu 2021 og skoraði tvö mörk. Í lok árs 2021 færði Brynjar Ingi sig um set, frá Ítalíu til norska úrvalsdeildarliðsins Vålerenga.

Á athöfninni var afhent heiðursviðurkenning fræðslu- og lýðheilsuráð Akureyrar fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á Akureyri. Rúnar Þór Björnsson hlaut heiðursviðurkenningu í ár fyrir áratuga starf í þágu íþrótta innan Siglingaklúbbsins Nökkva og bogfimideildar Akurs. 

Mynd: ÍBA.  Fleiri myndir frá athöfninni er að finna á heimasíðu ÍBA.