Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

04.05.2020

Transbörn og íþróttir í Reykjavík

Transbörn og íþróttir í ReykjavíkNý stefna í íþróttamálum Reykjavíkur sem gildir til ársins 2030 var samþykkt í borgarstjórn þann 21. apríl sl. Í stefnunni er mikil áhersla lögð á að öll börn og unglingar hafi tækifæri til að þroskast og eflast í fjölbreyttu og aðgengilegu íþróttastarfi. Þá á sérstaklega að tryggja að transbörn geti stundað skipulagðar íþróttir til jafns við önnur börn og tryggja fræðslu þjálfara til að mæta þörfum ólíkra barna.
Nánar ...
01.05.2020

Tilkynning frá Lyfjaeftirliti Íslands

Tilkynning frá Lyfjaeftirliti ÍslandsLyfjaeftirlit Íslands hefur tekið í notkun uppljóstrunarkerfi (e. whistleblower solution) til þess að stuðla betur að heiðarlegu og öruggu keppnis- og æfingaumhverfi í íþróttum. Kerfið er eingöngu ætlað til þess að tilkynna um möguleg brot á lyfjareglum í íþróttum, skv. Lögum ÍSÍ um lyfjamál og Alþjóðalyfjareglunum. Það felur í sér m.a.:
Nánar ...
01.05.2020

1. maí - Lokað í dag

1. maí - Lokað í dagÍ dag, þann 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, er lokað á skrifstofu ÍSÍ. Skrifstofan opnar á mánudaginn 4. maí.
Nánar ...
30.04.2020

450 milljón króna fjárframlag til íþróttastarfs

450 milljón króna fjárframlag til íþróttastarfs Fram kemur í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu í dag að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands verði falið að úthluta 450 milljóna kr. stuðningi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar til þess að mæta áhrifum COVID-19. Samningur þess efnis var undirritaður í gær. Stuðningur þessi byggir á þingsályktun um fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins, sem samþykkt var á Alþingi þann 30. mars sl.
Nánar ...
30.04.2020

Setningarhátíð Hjólað í vinnuna 2020

Setningarhátíð Hjólað í vinnuna 2020Hjólað í vinnuna verður sett með hátíðlegum hætti miðvikudaginn 6. maí nk. kl. 8:30 í Þróttaraheimilinu í Laugardal. Flutt verða stutt og hressileg hvatningarávörp og mun uppistandarinn Jóhann Alfreð Kristinsson halda uppi stemningu. Setningarhátíð verkefnisins er aðeins fyrir boðsgesti.
Nánar ...
30.04.2020

UMFÍ frestar tveimur mótum

UMFÍ frestar tveimur mótumStjórn Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hefur ákveðið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ og Íþróttaveislu UMFÍ sem halda átti í júní í sumar. Nýjar dagsetningar verða tilkynntar um leið og þær liggja fyrir á vefsíðu UMFÍ, www.umfi.is. Unglingalandsmót UMFÍ er hins vegar enn á dagskrá og fer fram á Selfossi um verslunarmannahelgina.
Nánar ...
29.04.2020

Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda

Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarendaSáttmáli um gagnkvæman skilning atvinnubílstjóra og hjólreiðafólks í umferðinni kom út í maí 2019. Markmið sáttmálans er að auka gagnkvæman skilning og koma í veg fyrir slys og tryggja öryggi allra vegfarenda. Samhliða fjölgun hjólreiðafólks undanfarin ár hefur hjólreiðaslysum einnig fjölgað, svo þörfin fyrir sátt og samlyndi ólíkra hópa í umferðinni hefur aldrei verið brýnni. Sáttmálinn inniheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra eins og til dæmis um blinda svæði bílstjórans og hættuna fyrir hjólreiðafólk að fara yfir gatnamót. Fjölmörg fyrirtæki og hagaðilar hafa nú þegar innleitt sáttmálann og notað við fræðslu, þjálfun og öryggismiðlun sinna starfsmanna.
Nánar ...
29.04.2020

Íþróttaiðkun trans barna

Íþróttaiðkun trans barnaÚt er kominn bæklingur um íþróttaiðkun trans barna, en á síðustu árum hefur þó nokkur fjöldi barna á öllum aldri verið að stíga fram sem trans. Mikilvægt er að huga vel að aðgengi þessa hóps að íþróttastarfi, taka vel á móti þeim og huga vel að þeirra sérstöðu. Bæklingurinn er hugsaður til upplýsinga fyrir foreldra, þjálfara og aðra sem að íþróttastarfinu koma. Bæklingurinn var unnin m.a. í samstarfi við Samtökin 78, Trans Ísland og Trans vini. Bæklingurinn er fyrst og fremst leiðbeinandi og tekur til barna að 12 ára aldri eða fyrir kynþroska. Bæklinginn má nálgast í prentaðri útgáfu á skrifstofu ÍSÍ og í rafrænni útgáfu á vefsíðu ÍSÍ.
Nánar ...
28.04.2020

Opnunartími ÍSÍ

Opnunartími ÍSÍSkrifstofa ÍSÍ verður opin frá 10-14 virka daga í þessari viku, en lokað verður föstudaginn 1. maí.
Nánar ...
27.04.2020

Hjólað til betri heilsu

Hjólað til betri heilsuÁ vefsíðu Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is, er að finna ýmsan skemmtilegan fróðleik sem kann að nýtast þátttakendum í verkefninu Hjólað í vinnuna, sem hefst þann 6. maí nk. Meðal annars er þar hægt að sjá „Göngu- og hjólastígakort“, en þar er að finna tengingu inn á borgarvefsjá og aðra góða vefi þar sem hægt er að finna góðar hjólaleiðir. Einnig er hægt að lesa sér til um umferðaröryggi hjólreiðafólks, öryggisbúnað og fleira.
Nánar ...