Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

13.11.2019

Dagur í lífi afreksíþróttamanns

Dagur í lífi afreksíþróttamannsÍSÍ er með Instagram síðu, @isiiceland, þar sem leitast er við að koma á framfæri því góða starfi sem fram fer í íþróttahreyfingunni. Nú stendur til að beina sjónum að íslensku afreksíþróttafólki og leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í þeirra daglega líf. Íþróttamaðurinn sem ætlar að leyfa okkur að fylgjast með degi í sínu lífi er Arnar Davíð Jónsson, nýkrýndur sigurvegari Evrópumótaraðarinnar í keilu. Sigurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í íslenskri keilusögu. Helgina fyrir þann glæsilega sigur keppti Arnar Davíð í Kúveit þar sem hann náði 2. sæti í World Bowling Tour. Það að Arn­ar Davíð hafi náð í úr­slit á slíku móti er risa­stórt skref fyr­ir keiluíþrótt­ina á Íslandi.
Nánar ...
12.11.2019

Fyrirlestrar Sýnum karakter aðgengilegir

Fyrirlestrar Sýnum karakter aðgengilegirNú eru fyrirlestrar frá fjórðu ráðstefnu Sýnum karakter sem bar heitið „Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter?“ aðgengilegir á Youtube síðu Sýnum karakter hér.
Nánar ...
11.11.2019

Heimsráðstefna WADA 2019

Heimsráðstefna WADA 2019Þann 5. til 7. nóvember fór fram heimsráðstefna Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA) í Katowice í Póllandi í fimmta sinn. Meginþema ráðstefnunnar voru nýju Alþjóðalyfjareglurnar sem taka gildi 1. janúar 2021 ásamt uppfærðum alþjóðastöðlum tengdum lyfjamálum. Tveir nýir alþjóðastaðlar munu taka gildi samhliða reglunum en það eru alþjóðastaðall fyrir fræðslu og alþjóðastaðall fyrir málsmeðferðir. Alþjóðalyfjareglurnar eru uppfærðar á sex ára fresti 1. janúar 2021 munu því taka í gildi nýjar reglur í stað þeirra sem eru núgildandi frá 1. janúar 2015. Helstu breytingar í reglunum verða sérstaklega kynntar þegar nær dregur.
Nánar ...
08.11.2019

Nýr framkvæmdastjóri HSV

Nýr framkvæmdastjóri HSVBjarki Stefánsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) og tekur við starfinu af Sigríði Láru Gunnlaugsdóttur, sem hefur gegnt því síðastliðin fimm ár. Bjarki er með BS próf í íþróttafræði frá HÍ og er um mánaðarmótin að útskrifast með mastersgráðu frá Háskólanum í Liverpool í stjórnun og rekstri innan íþróttahreyfingar (Sports Business and Management). Bjarki hefur fjölbreyttan íþróttabakgrunn sem iðkandi, þjálfari og kennari.
Nánar ...
08.11.2019

Dagur í lífi afreksíþróttamanns

Dagur í lífi afreksíþróttamannsHvernig er dagur í lífi afreksíþróttamanns? Kári Gunnarsson, margfaldur Íslandsmeistari í badminton, stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan í júlí 2020. Hann ætlar að taka yfir Instagram Story á síðu ÍSÍ @isiiceland í dag og leyfa okkur hinum að fylgjast með degi í sínu lífi.
Nánar ...
07.11.2019

Hreint íþróttafólk fær sína stund á verðlaunapalli

Hreint íþróttafólk fær sína stund á verðlaunapalliNý sex þátta sería var frumsýnd á Ólympíustöðinni í gær sem kallast „Take the Podium“ eða „Verðlaunapallurinn er þinn“. Þættirnir fjalla um það þegar íþróttamaður fær verðlaun sín frá Ólympíuleikum afhent, eftir að upp hefur komist að annar íþróttamaður féll á lyfjaprófi. Tekin eru viðtöl við íþróttamanninn og honum fylgt eftir í gegnum þann feril sem hefst þegar kemur í ljós að hann hafi í raun unnið til gull- silfur- eða bronsverðlauna á Ólympíuleikum.
Nánar ...
05.11.2019

Hvernig er dagur í lífi afreksíþróttamanns?

Hvernig er dagur í lífi afreksíþróttamanns?ÍSÍ er með Instagram síðu, @isiiceland, þar sem leitast er við að koma á framfæri því góða starfi sem fram fer í íþróttahreyfingunni. Nú stendur til að beina sjónum að íslensku afreksíþróttafólki og leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í þeirra daglega líf. Frá og með þessari viku mun íslenskt íþróttafólk skiptast á að taka við Instagram síðu ÍSÍ og sýna okkur hinum hvernig dagur í lífi þess er með því að hlaða inn myndum og myndböndum á Instagram Stories.
Nánar ...
01.11.2019

Ekki harka af þér höfuðhögg!

Ekki harka af þér höfuðhögg!Höfuðhögg getur haft alvarlegar afleiðingar. Um það eru mörg dæmi í knattspyrnu og fleiri íþróttum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands hafa í samstarfi unnið fræðslumyndbönd tengd þessu mikilvæga viðfangsefni. Annars vegar er um að ræða grafísk myndbönd með mikilvægum upplýsingum, m.a. um fyrstu viðbrögð, og hins vegar viðtalsmyndbönd þar sem knattspyrnufólkið Heiðrún Sara Guðmundsdóttir og Elfar Árni Aðalsteinsson deila reynslusögum (Viðtalsmyndböndin má sjá á samfélagsmiðlum KSÍ, t.d. hér).
Nánar ...
31.10.2019

Fræðslufundur UMSS 2019

Fræðslufundur UMSS 2019Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) stóð fyrir viðburðinum Fræðslufundur UMSS 2019 í Miðgarði í Skagafirði miðvikudaginn 30. október síðastliðinn. Þessi árlegi viðburður er liður í stefnu UMSS í fræðslumálum. Ágætis mæting var frá fulltrúum aðildarfélaga UMSS enda voru fræðslufyrirlestrar fjölbreyttir og góð umræða um samvinnu í þessum efnum að fyrirlestrum loknum. Baldur Þór Ragnarsson körfuknattleiksþjálfari var með fyrirlestur um liðsmenningu mfl. Tindastóls í körfuknattleik karla, Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri var með kynningu á styttri útgáfum af stjórnendanámskeiðum ÍSÍ og Sölvi Tryggvason var með athyglisverðan fyrirlestur sem hann kallaði „Sigrum streituna“. Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sá um fundarstjórn.
Nánar ...
30.10.2019

Bannlisti WADA 2020 - Helstu breytingar

Bannlisti WADA 2020 - Helstu breytingarBannlisti Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA Prohibited List) er endurskoðaður á hverju ári. Ný útgáfa tekur gildi 1. janúar 2020 og fyrir neðan má sjá helstu breytingar á milli ára.
Nánar ...
28.10.2019

Þrjár frjálsíþróttakonur á leið á HM

Þrjár frjálsíþróttakonur á leið á HMHeimsmeistaramót fatlaðra í frjálsíþróttum fer fram í Dubai dagana 7.- 15. nóvember nk. Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) teflir fram þremur keppendum á mótinu og að þessu sinni eru það þrjár öflugar frjálsíþróttakonur sem munu reyna fyrir sér á stóra sviðinu.
Nánar ...