Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

31.08.2017

Vefsíðan Sýnum karakter

Vefsíðan Sýnum karakterÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) standa saman að vefsíðunni Sýnum karakter. Vefsíðan er aðallega ætluð þjálfurum og íþróttafélögum.
Nánar ...
30.08.2017

Aðgát í umferðinni

Verkefninu Göngum í skólann verður hleypt af stokkunum í ellefta sinn miðvikudaginn 6. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 4. október.
Nánar ...
29.08.2017

Hjólum í skólann 2017 hafið

Hjólum í skólann 2017 hafiðÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir hvatningarverkefninu Hjólum í skólann 2017 þar sem framhaldsskólanemendur og starfsfólk framhaldsskólanna er hvatt til að nota virkan ferðamáta til að ferðast til og frá skóla. Virkur ferðamáti felst í því að nýta sitt eigið afl til að ferðast með því að ganga, hjóla, nota hjólabretti eða línuskauta en einnig má nýta sér strætó til samgangna. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Nánar ...
28.08.2017

Skráning í þjálfaramenntun fer fram núna

Skráning í þjálfaramenntun fer fram núnaHaustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Nánar ...
25.08.2017

Aðgerðaráætlun gegn einelti

Aðgerðaráætlun gegn eineltiÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur gefið út hina ýmsu fræðslubæklinga. Einn slíkur kallast „Aðgerðaráætlun gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun“.
Nánar ...
24.08.2017

Andlegi þátturinn mikilvægur

Andlegi þátturinn mikilvægurÁ dögunum fagnaði Skotfélag Reykjavíkur 150 ára afmæli, en félagið er elsta íþróttafélag landsins. Af því tilefni fékk félagið þrefaldan Ólympíumeistara í skotfimi, Ítalann Niccolo Campriani, og unnustu hans, Petra Zublasing, sem er margfaldur heims- og Evrópumeistari, til að halda fyrirlestur um markmiðasetningu og æfingar afreksíþróttafólks. Fyrirlesturinn fór fram í Háskólanum í Reykjavík og var samvinnuverkefni Skotfélags Reykjavíkur, HR og ÍSÍ. Góð mæting var á fyrirlesturinn, en hann átti erindi við allt íþróttafólk óháð íþróttagrein.
Nánar ...
23.08.2017

Íþróttavika Evrópu

Íþróttavika EvrópuÍþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin víðsvegar um álfuna vikuna 23. – 30. september nk. og verður Ísland engin undantekning.
Nánar ...
21.08.2017

Þjálfaramenntun ÍSÍ- Haustfjarnám

Þjálfaramenntun ÍSÍ- Haustfjarnám Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar.​
Nánar ...
21.08.2017

Fyrirlestur afreksfólks í dag

Fyrirlestur afreksfólks í dag​Í hádeginu í dag fer fram fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík. Þar munu margfaldir Ólympíu- og heimsmeistarar í skotíþróttum, þau Niccolo Campriani og Petra Zublasing, halda erindi um ýmsar hliðar skotíþrótta með áherslu á afreksþjálfun og markmiðasetningu.
Nánar ...
18.08.2017

Vel heppnað kaffisamsæti

Vel heppnað kaffisamsætiSamtök íslenskra Ólympíufara buðu til kaffisamsætis þann 14. ágúst í tilefni afmælisáranna frá þátttöku Íslands á Ólympíuleikum 1952, 1972, 1992, 2002 og 2012. Einnig var kynntur samningur samtakanna við World Class sem býður félagsmönnum mjög myndarleg afsláttarkjör. Fulltrúar frá samtökum Ólympíufara frá Danmörku og Svíþjóð heiðruðu samkomuna en það voru; Svíjarnir Pernilla Wiberg og Gunnar Larsson og Danirnir Keld Nielsen og Rene Nielsen.
Nánar ...