Fara í efni

Heiðursforsetar ÍSÍ

Heiðursforseti ÍSÍ er titill sem veittur er fyrrverandi forsetum sem hafa haft víðtæk og varanleg áhrif á íslenska íþróttahreyfingu. Viðurkenningin endurspeglar leiðtogahlutverk þeirra og framlag til þróunar og styrkingar ÍSÍ.

Gísli Halldórsson
Forseti ÍSÍ 1962 - 1980

F. 12. ágúst 1914, d. 8. október 2012

Gísli Halldórsson var kjörinn Heiðursforseti ÍSÍ árið 1994 eftir 18 ár sem forystumaður íþróttahreyfingarinnar. Hann var formaður Ólympíunefndar Íslands á árunum 1973-1994, en sat í nefndinni frá árinu 1951. Hann var forseti ÍSÍ frá 1962-1980. 

Gísla hlotnuðust margar viðurkenningar. Hann hlaut riddarakross fálkaorðunnar 1963 og stórriddarakross fálkaorðunnar 1974, heiðursorðu Alþjóðaólympíunefndarinnar 1983 og gullorðu Heimssambands Ólympíunefnda 2002, ef nefna á nokkrar.

Ellert B. Schram
Forseti ÍSÍ 1991 - 2006

F. 10. október 1939 - d. 24. janúar 2025

Ellert B. Schram var kjörinn Heiðursforseti ÍSÍ á 68. Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2006. Hann var kjörinn forseti Íþróttasambands Íslands árið 1991 og gegndi því embætti til ársins 2006. Þar á undan var hann formaður Knattspyrnusambands Íslands í 16 ár. 

Ellert var sæmdur fjölmörgum viðurkenningum á sínum forystuferli í íþróttahreyfingunni. Hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2001 fyrir störf í þágu íþrótta og hann var einnig sæmdur lárviðarsveig Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) árið 2018.

Lárus L. Blöndal
Forseti ÍSÍ 2013-2025

F. 5. nóvember 1961

Lárus var kjörinn Heiðursforseti ÍSÍ á 77. Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2025. Hann var kjörinn forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og gegndi því embætti til ársins 2025 eða í 12 ár. Áður var Lárus varaforseti ÍSÍ í sjö ár og þrjú ár sem formaður Afrekssjóðs ÍSÍ.

Lárus hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir leiðtogastörf í íþróttahreyfingunni. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2018 fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar.