
Haukur Clausen fæddist 8. nóvember 1928, hann var eineggja tvíburabróðir Arnar Clausen sem einnig var frjálsíþróttamaður. Þeir bræður, sem voru alla tíð mjög nánir, voru einna fremstir íslenskra íþróttamanna á gullöld íslenskra frjálsíþrótta fyrir og um 1950. Þeir voru ÍR-ingar og fóru mikinn í landsliði Íslands í frjálsíþróttum á keppnisferlinum, sem var reyndar allt of stuttur að flestra mati.
Haukur varð Norðurlandameistari í 200 metra hlaupi árið 1947, þá aðeins 18 ára gamall, er hann hljóp á nýju Íslandsmeti, 21,9 sek. Hann keppti á Ólympíuleikunum í London1948 og varð þrettándi í 100 metra hlaupi. Á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Brussel 1950 komst hann í úrslit í 100 metra hlaupi og varð í fimmta sæti. Sumarið 1950 setti hann Norðurlandamet í 200 metra hlaupi, 21,3 sek. Það var besti tími ársins í Evrópu og stóð Norðurlandametið í sjö ár en það var einnig Íslandsmet sem stóð í 27 ár. Haukur átti allmörg Íslandsmet í ýmsum frjálsíþróttagreinum.
Haukur lést 1. maí 2003.
Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Hauk Clausen í Heiðurshöll ÍSÍ.
