Íþróttaeldhugi ársins
Íþróttaeldhugi ársins
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands útnefnir árlega, í samvinnu við Lottó, Íþróttaeldhuga ársins úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni. Valið er kynnt á hófi Íþróttamanns ársins.
Með útnefningunni vill ÍSÍ vekja athygli á starfi sjálfboðaliða og þakka þeim framlag sitt um land allt. Sjálfboðaliðar gegna lykilhlutverki í öllum íþróttafélögum landsins og eiga stóran þátt í því hversu öflugt starfið í hreyfingunni er.
Tilnefningar opnar fyrir Íþróttaeldhuga ársins 2026

Þekkir þú sjálfboðaliða sem leggur hjarta og sál í starfið hjá sínu félagi? Nú er hægt að senda inn tilnefningu og vekja athygli á eldhuga sem á skilið þakklæti og viðurkenningu.
Tekið er við tilnefningum til 5. desember.

Íþróttaeldhugi ársins 2025
Bjarni Malmquist Jónsson sýndi einstakan drifkraft og seiglu við að endurvekja Ungmennafélagið Vísi í Suðursveit og að virkja samtakamátt fólksins í sveitinni við framkvæmdir á fjölnota íþróttavelli við Hrollaugsstaði. Hann hefur verið leiðandi í að skapa tækifæri fyrir samfélagið til að láta hugmyndir rætast og hefur smitað út frá sér með jákvæðni og lausnamiðaðri hugsun.
Verkefnið varð ekki aðeins byggingarframkvæmd heldur samfélagslegt afl þar sem nær hver einasti íbúi lagði sitt af mörkum. Íþróttavöllurinn við félagsheimilið Hrollaugsstaði hefur orðið tákn um sjálfstæði, seiglu og trú á framtíðina í einni af fjarlægari sveitum landsins. Áhrif Bjarna munu vara um ókomna tíð og styrkja sveitarfélagið, ungmennafélagið og samheldni í Suðursveit um ókomin ár.
Bjarni hefur einnig unnið mikið starf hjá Borðtennisdeild Ungmennafélagsins Vísis, komið á laggirnar vikulegum æfingum í borðtennis fyrir allan aldur og árlegum æfingabúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Hann hefur verið drífandi kraftur fyrir fólkið í Suðursveit og er formaður USÚ.
Með eldmóði og hugrekki hefur Bjarni kveikt neista sem hefur breiðst út um alla Suðursveit. Bjarni er verðugur Íþróttaeldhugi ársins 2025.