Dómstólar ÍSÍ
Dómstig dómstóla ÍSÍ eru tvö, Dómstóll ÍSÍ og Áfrýjunardómstóll ÍSÍ. Nefnast þau einu nafni dómstólar ÍSÍ. Dómstólar ÍSÍ hafa aðsetur í höfuðstöðvum ÍSÍ.
Samkvæmt grein 26.1 í lögum ÍSÍ skal kæra vera skrifleg. Kæru ásamt fylgigögnum skal senda á isi@isi.is
Eyðublað fyrir kæru - Eyðublað er einnig hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ.
Dómstólar ÍSÍ hafa fullnaðarlögsögu yfir þeim málefnum sem koma upp innan íþróttahreyfingarinnar og sem varða lög og reglur ÍSÍ, sérsambanda, íþróttahéraða, aðildarfélaga eða einstakra iðkenda eftir því sem við á. Dómstóll ÍSÍ er fyrsta dómstig í málum sem upp koma innan íþróttahreyfingarinnar, sbr. þó grein 20.6. í lögum ÍSÍ og er Áfrýjunardómstóll ÍSÍ æðsti dómstóll innan íþróttahreyfingarinnar.
Dómstólar ÍSÍ byggja niðurstöður sínar á lögum og reglum ÍSÍ, sambandsaðila og viðkomandi íþróttafélaga þegar við á og meginreglum íþróttaréttar.
Dómstóll ÍSÍ
- Stefán Karl Kristjánsson, dómsformaður
- Halldór Frímannsson, dómari
- Ingibjörg Pálmadóttir, dómari
- Ólafur Björnsson, dómari
- Tanja Tómasdóttir, dómari
- Þóra Margrét Hjaltested, dómari
Dómar dómstóls ÍSÍ
Eftirfarandi málum var áfrýjað:
Mál 3 - 2025: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Mál 8 - 2025: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Mál 9 - 2025: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Eftirfarandi málum var áfrýjað:
Mál 4 - 2024: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Mál 6 - 2024: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Mál 7 - 2024: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Mál 8 - 2024: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Mál 9 - 2024: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Eftirfarandi málum var áfrýjað:
- Mál 7 - 2023: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
- Mál 7 - 2023 - framhald: Dómur Áfrýjunardómstóls ÍSÍ.
Áfrýjunardómstóll ÍSÍ
- Helgi Sigurðsson, dómsformaður
- Karl Gauti Hjaltason, dómari
- Hulda Árnadóttir, dómari
- Helga Melkorka Óttarsdóttir, dómari
- Gestur Jónsson, dómari
- Ásgeir Þór Árnason, dómari
Dómar áfrýjunardómstóls ÍSÍ
Sérsamböndum innan ÍSÍ er heimilt að ákveða í lögum sínum að viðkomandi sérsamband hafi sérstaka dómstóla, undirdómstig og áfrýjunardómstig, innan viðkomandi sérsambands. Málefni sérsambanda heyra undir dómstóla ÍSÍ þar til lagabreyting sem tiltekur að viðkomandi sérsamband hafi tekið upp eigið dómstólakerfi með undirdómsstigi og áfrýjunardómsstigi, hefur verið staðfest af framkvæmdastjórn ÍSÍ. Dómstólar þeirra sérsambanda sem taka upp eigið dómstólakerfi skulu lúta dómstólareglum viðkomandi sérsambands og skulu öll ágreiningsmál er varða þá íþróttagrein rekin fyrir viðkomandi sérsambandsdómstólum. Lög ÍSÍ um dómstólaskipan skulu þó standa þeim til fyllingar, eftir því sem við getur átt. Dómstóll ÍSÍ er þó ávallt fyrsta dómsstig er varða brot á lyfjareglum Lyfjaeftirlits Íslands.
Sérsambönd með eigin dómstóla:
- Knattspyrnusamband Íslands
- Handknattleikssamband Íslands
- Golfsamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Akstursíþróttasamband Íslands