Fara í efni

Bjartur lífsstíll stendur fyrir rafrænu málþingi um heilsueflingu 60+ fimmtudaginn 12. nóvember kl. 13:00–15:00. Bjartur lífsstíll hefur staðið fyrir málþingi undanfarin ár og í ár verður engin undantekning þar á.

Á dagskrá eru fjölbreytt og fræðandi erindi um þjálfun, heilsu, virkni og almenna líðan eldra fólks. Fjallað verður meðal annars um hreyfingu á öllum æviskeiðum, hollt mataræði, dans með eldri borgurum, sjálfboðaliðastörf í íþróttahreyfingunni og mýtur um styrktarþjálfun. Markmiðið er að miðla þekkingu, deila reynslu og kynna leiðir sem styðja við heilbrigt, virkt og innihaldsríkt líf á efri árum.

Málþingið er öllum opið og þátttaka er ókeypis. Það er ætlað þjálfurum, iðkendum, starfsfólki sveitarfélaga, heilbrigðisstarfsfólki og öllum sem hafa áhuga á heilsueflingu eldri aldurshópa.

Bjartur lífsstíll er samstarfsverkefni ÍSÍ og Landssambands eldri borgara (LEB) og hefur verið starfrækt frá árinu 2022.

Skráning og hlekkur

Þau sem skrá sig fá sent fundarboð og áminningu þegar nær dregur.

Skráning á málþingið

Hlekkur á málþingið (Teams)

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði málþingsins.

Dagskrá

/cdn/media/Frettamyndir/60malthing.jpg?v=1793215913

13:00 – Gestir boðnir velkomnir og fyrirkomulag kynnt

13:05 – Hreyfing: Heilsuefling á öllum æviskeiðum
Arnaldur Birgir Konráðsson (Coach Birgir), einkaþjálfari

13:25 – Æfing dagsins – Hreyfidagatal
Svandís Björk Guðmundsdóttir og Hildur Ingadóttir, sjúkraþjálfarar í öldrunarþjónustu

13:45 – Sjálfboðaliðastörf í íþróttahreyfingunni út lífið
Hansína Þóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur á fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ

Stutt hlé

14:10 – Það þarf ekki að vera flókið að borða hollt og fjölbreytt
Gunnhildur Sveinsdóttir, lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri hjá SÍBS

14:30 – „En ég kann ekkert að dansa“ – Dansað með eldri borgurum
Sunneva Líf Albertsdóttir, dansari, B.Sc. í sálfræði og meistaranemi í listum og velferð við Listaháskóla Íslands

14:50 – Mýtur og misskilningur um styrktarþjálfun
Arnar Hafsteinsson, klínískur íþróttafræðingur og doktorsnemi á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands