Fundarsalir og veitingar
Í Íþróttamiðstöðinni Laugardal er boðið upp á fjölbreytta fundaraðstöðu fyrir minni og stærri hópa. Hægt er að panta veitingar samhliða fundum, hvort sem um er að ræða kaffiveitingar eða hádegismat. Fundarsalirnir eru á 3. hæð og bera heitin fundarsalur A, B, og C.
Bókun fundarsala og veitinga: cafeeasy@isi.is eða sími 699 2461. (Stjörnuveitingar ehf. - Ingiberg Baldursson).