Fara í efni

Afsláttarkjör Icelandair - innanlandsflug

Icelandair er eitt af samstarfsfyrirtækjum ÍSÍ í Ólympíufjölskyldu ÍSÍ og styður vel við bakið á íþróttastarfinu í landinu. Icelandair og ÍSÍ hafa samið um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna til að létta undir með íþróttafélögum vegna ferða innanlands.

Einstaklingsbókanir

  • Einingar innan ÍSÍ (sérsambönd, íþróttahéruð, íþrótta- og ungmennafélög og deildir þeirra) geta sótt um inneignarkóða til ÍSÍ fyrir einstaklinga sem ferðast á þeirra vegum til verkefna er tengjast íþróttastarfinu (dæmi: mót, æfingar, fundir, þing).
  • Inneignarkóðana þarf að nálgast fyrirfram á skrifstofu ÍSÍ á hefðbundnum skrifstofutíma og því er hreyfingin hvött til að setja sig í samband við ÍSÍ í góðum tíma fyrir bókun. Til þess að fá inneignarkóða þarf forsvarsaðili félags/sambands að senda póst á mottaka@isi.is . Taka þarf fram nafn félags og fjölda flugleggja sem óskað er eftir.
  • Inneignarkóða þarf að afla fyrirfram á skrifstofu ÍSÍ á hefðbundnum skrifstofutíma. Félög eru hvött til að hafa samband við ÍSÍ með góðum fyrirvara áður en bókað er.
  • Hver inneignarkóði felur í sér 3.200 króna inneign upp í einstaklingsfargjald.
  • Hægt er að nota inneignina upp í fargjöld í öllum verðflokkum sem í boði eru á bókunarsíðu Icelandair. Þar sem afslátturinn er föst upphæð þá er hann hlutfallslega hagstæðastur á lægstu fargjöldunum. Góður fyrirvari á bókun getur því borgað sig.

Skilyrði

Einstaklingsbókanir fara alfarið í gegnum bókunarvél á vefsíðu Icelandair.  Einungis er leyfilegt að nota einn inneignarkóða pr. fluglegg. Ekki er leyfilegt að nota inneignarkóða á móti breytingargjaldi.

Hópabókanir

Icelandair býður sérstök afsláttarkjör fyrir þróttahópa. 

  • 15% afsláttur af hópafargjaldi.
  • Börn undir 12 ára fá 50% afslátt af fargjöldum.
  • 50% afsláttur af sértækum farangri ef afhentur hjá Flugfrakt Icelandair Cargo 24 klst. fyrir brottför.
  • Engin gjöld fyrir nafnabreytingar sem eru gerðar innan tilsetts tímaramma.
  • Endurgreiðanlegt fargjald að frádregnum 2.500 kr. pr. fluglegg ef afbókað með minnst 24 klst. fyrirvara.
  • Leyfilegur farangur: 23 kg innritaður farangur + 6 kg handfarangur.

Skilyrði

  • Íþróttahópur skal ætíð hefja ferð saman en hægt er að gera einstaklingsbreytingar á til baka leggnum
  • Staðfestingargjald 2.500 kr. pr. fluglegg (ekki endurgreitt).
  • Afbókun innan 24 klst. fyrir brottför: aðeins flugvallarskattar endurgreiddir.
  • Breytingargjald: minnst 2.500 kr. pr. farþega pr. fluglegg + fargjaldamismunur.
  • Nafnalisti og lokagreiðsla þurfa að berast a.m.k . 7 virkum dögum fyrir brottför.
  • Icelandair áskilur sér rétt til að fella niður bókun ef nafnalisti berst ekki á réttum tíma.
  • Nafnabreytingar eru ekki heimilar við brottför.
  • Afsláttur gildir aðeins af fargjaldshluta, ekki sköttum eða þjónustugjöldum.
  • Mæting 45 mínútum fyrir brottför – skilríki skylda.

Fyrirkomulag bókana

  • Hópadeild Icelandair sér um allar bókanir fyrir ÍSÍ-hópa.
  • Opnunartími: virkir dagar 08:00–16:00.
  • Netfang: sport@icelandair.is
  • Sími: 5050-406
  • Dómarar á vegum ÍSÍ hafa sömu skilmála og aðrir ÍSÍ-hópar.
  • Nafnabreytingar: senda á sport@icelandair.is fyrir kl. 15:00 daginn fyrir brottför.
  • Neyðartilvik: þegar hópadeildin er lokuð þá senda á sportbreytingar@icelandair.is í síðasta lagi fyrir kl. 21:00 kvöldið fyrir ferðadag.
  • Lengri bókunarfyrirvari → hagstæðari fargjöld.