Réttur félaga til að sækja um
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan ÍSÍ geta sótt um styrk vegna keppnisferða innanlands, fyrir alla aldurshópa í viðurkenndum íþróttagreinum, á skilgreind styrkhæf mót.
Skilyrði fyrir styrkhæfri ferð
Til að teljast styrkhæf þarf ferð að vera að minnsta kosti 150 km aðra leið.
Fjarlægð er reiknuð frá aðsetri félags að keppnisstað.
Útreikningur ferðakostnaðar
ÍSÍ notar fast viðmið á hvern kílómetra til að tryggja sambærilegan útreikning á ferðakostnaði milli félaga.
Styrkur miðast ekki við raunverulegan kostnað sem félög skila inn, heldur við kostnað sem reiknaður er út samkvæmt reglum sjóðsins.
Við útreikning er meðal annars tekið mið af:
- fjarlægð ferða
- fjölda þátttakenda
- fjölda ferða
Jöfnun ferðakostnaðar milli félaga
Til að jafna stöðu félaga sem þurfa að ferðast oft, langt og með marga iðkendur er notaður upphæðarstuðull, sem hækkar styrk í þrepum eftir heildarútreiknuðum ferðakostnaði.
Íþróttahéruðum er skipt í flokka og hvert hérað fær landsbyggðarstuðul, sem byggist á fjarlægð helstu byggðarkjarna frá höfuðborgarsvæðinu.
Landsbyggðarstuðull margfaldast við upphæðarstuðul. Hámark margföldunar er 3.
Kostnaður sem telst ekki styrkhæfur
Einungis beinn ferðakostnaður er styrkhæfur.
Gistikostnaður og annar tengdur kostnaður fellur ekki undir styrkveitingar.
Greiðsla styrkja
Styrkir eru greiddir út í febrúar eða mars vegna keppnisferða ársins á undan.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ staðfestir úthlutun sjóðsins áður en greiðsla fer fram.
Staðfesting og endurskoðun vinnureglna
Vinnureglur sjóðsins eru staðfestar af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Breytingar á reglum eru gerðar í samráði við ráðuneytið.