Fara í efni

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar

Hvatasjóðurinn er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu. 

Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Hverjir geta sótt um?

Í hvatasjóðinn geta sótt:
Íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ
Íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ
Sérsambönd ÍSÍ í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Hvað styrkir sjóðurinn?

Hvatasjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:
• auka útbreiðslu og  þátttöku barna í íþróttum
• efla þátttöku barna með fötlun
• efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum
• efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Hvað skal umsóknin innihalda?

Í umsókn skal meðal annars tilgreina:
• lýsingu á verkefninu og markmiðum þess
• rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði
• tíma- og verkáætlun
• fjárhagsáætlun verkefnisins