Innra skipulag og starfsemi
ÍSÍ er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi á Íslandi. Undir ÍSÍ heyra íþróttahéruð um allt land og sérsambönd fyrir einstaka íþróttagreinar. Saman mynda þau eitt samtengt kerfi íþróttastarfsins.
Skipulag
Í lögum ÍSÍ er fjallað um skipulag sambandsins.
Sambandið heitir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, skammstafað ÍSÍ. Það er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu, sbr. ákvæði íþróttalaga.
ÍSÍ er landssamband íþróttahéraða og sérsambanda. Aðilar að íþróttahéruðunum eru félög sem hafa iðkun íþrótta á stefnuskrá sinni. Aðilar að sérsamböndum eru íþróttahéruð.
Íþróttahéruðin eru mynduð eftir legu og aðstöðu til samvinnu um iðkun íþrótta.
Sérsambönd eru mynduð um ákveðnar íþróttagreinar og eru landsamtök allra íþróttahéraða, sbr. kafla 6, sem hafa iðkun þeirrar íþróttagreinar á stefnuskrá sinni. Þau félög innan hvers íþróttahéraðs sem leggja stund á sömu íþróttagrein, geta myndað sérráð. Aðeins má viðurkenna eitt sérsamband fyrir hverja íþróttagrein. Er þá við miðað, að það samband verði eða geti orðið aðili að alþjóðasérsambandi fyrir þá íþróttagrein, er njóti viðurkenningar Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Ólympísk sérsambönd eru þau sambönd, er eiga aðild að viðurkenndu alþjóðasérsambandi fyrir íþróttagreinar, sem eru á dagskrá Ólympíuleikanna. Ber þessum samböndum að halda uppi virkri starfsemi á sviði íþróttagreinar sinnar heima fyrir og á alþjóðavettvangi, einkum með því að skipuleggja og taka þátt í keppnismótum og sjá fyrir kerfisbundinni þjálfun íþróttamanna.

Stjórnsýsla
Stjórnsýsluleg verkefni eru umfangsmikil í starfi ÍSÍ enda íþróttahreyfingin á Íslandi lagskipt og flestar einingar innan ÍSÍ með eigin lög, stefnur og reglugerðir sem ekki mega ganga gegn lögum og reglum ÍSÍ. Eftirlitshlutverkið er því afar víðfeðmt en einnig er unnið stöðugt að því að bæta stjórnarhætti í íþróttahreyfingunni, skerpa á regluverki og útbúa sniðmát og leiðbeiningar til að létta undir með þeim sem leiða íþróttastarfið í landinu.
Afreksíþróttir
Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) styður við íslenskt afreksíþróttastarf og íslenskt afreksíþróttafólk á vegi að alþjóðlegum árangri. AMÍ er ætlað að byggja upp faglegt umhverfi þar sem keppendur, þjálfarar og lið geta þróað hæfni sína, tekið þátt í stórmótum og náð markmiðum sínum á heimsmælikvarða.
ÍSÍ, sérsambönd, þjálfarar og vísindasamfélagið vinna saman að því að skapa aðstæður til vaxtar - frá hæfileikamótun og fræðslu til þátttöku á Evrópuleikum, Ólympíuleikum og alþjóðlegum viðburðum. Stefnan er að hækka afreksstig íslenskra íþrótta og tryggja að afreksíþróttir verði sjálfbært og faglegt hluti af íþróttalífi landsins.
Almenningsíþróttir
Almenningsíþróttir hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands snúast um að hvetja fólk til daglegrar hreyfingar og gleði í lífinu, óháð aldri, getustigi eða bakgrunni. Markmiðið er að búa til þau tækifæri sem gera öllum kleift að stunda íþróttir og hreyfingu á sínum forsendum og í sinni nærumhverfi. Góð lýðheilsa er lykilþáttur í velferð þjóðarinnar.
ÍSÍ styður fjölbreytt verkefni og hreyfiátök sem hvetja til virkrar þátttöku og bættrar heilsu – allt frá göngum í skólann og hjólreiðum til styrktaræfinga og almennra hreyfiverkefna fyrir alla aldurshópa.
Fræðsla
ÍSÍ þróar og vinnur fræðsluefni fyrir þjálfara, stjórnendur og íþróttafólk og stendur fyrir þjálfaramenntun ásamt því að standa fyrir fjölbreyttum fræðsluviðburðum um ýmsa málaflokka er tengjast íþróttastarfinu í landinu. Markmiðið er að auka þekkingu og fagmennsku í íþróttahreyfingunni og styðja við þá sem þar starfa.