Fara í efni

Svæðisstöðvar

 

UMFÍ og ÍSÍ hafa komið á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og hlutverk þeirra er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðisstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni. Styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar.

Þessu tengdu var stofnaður sérlegur hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar sem styrkir verkefni sem auka þátttöku barna í íþróttum, með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. jafnt aðgengi og fjölbreytni. Umsóknir eru afgreiddar í gegnum svæðisstöðvar íþróttahéraða.

Inni á heimasíðu Svæðisstöðva íþróttahéraða má finna nánari upplýsingar um svæðisstöðvarnar,  skiptingu þeirra, starfsfólk og hvatasjóðinn. Einnig er þar að finna verkfærakistu íþróttahreyfingarinnar sem er safn af leiðbeiningum, sniðmátum, skjölum, myndböndum og öðru gagnlegu efni sem ætlað er að styðja við starfsemi, skipulag og þróun íþrótta- og ungmenna-félagshreyfingarinnar.