Göngum í skólann er verður formlega sett föstudaginn 4. september í Árskóla á Sauðárkróki en því líkur 7. október. Göngum í skólann er hluti af verkefninu ,,Virkar og öruggar leiðir í skólann", sem nýtur stuðnings "Go for Green" og annarra samstarfsaðila. Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingum, Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.
Nánari upplýsingar verkefnið má finna hér