Fara í efni

Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu. Dæmi er að hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta og svo framvegis. 

Átakið hefst 1. maí og lýkur 31. maí. Skráning opnar föstudaginn 17. apríl.

Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt. Þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð.

Nánari upplýsingar er að finna hér: hjoladivinnuna.is