Ólympíudagurinn er haldinn hátíðlegur um heim allan þann 23. júní.
Markmið með deginum er að bjóða almenningi að kynnast fjölbreyttum íþróttagreinum, með áherslu á að uppgötva, læra og hreyfa sig. Í gegnum íþróttir eru einnig kynnt gildi Ólympíuhreyfingarinnar: Gera sitt besta - vinátta og virðing.
Alþjóðaólympíunefndin var stofnuð þennan dag árið 1894.
