Fara í efni

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands mun í samstarfi við Svæðisstöð íþróttahéraða á Austurlandi og Ungmennafélagið Vísi halda upp á Ólympíudaginn á Vísisvellinum í Suðursveit föstudaginn 26. júní. Viðburðurinn hefst klukkan 13:00 og þar munu börn og unglingar af svæðinu koma saman til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar, hreyfa sig og eiga góða stund saman.