Ólympíuleikar ungmenna (YOG 2026) fara fram dagana 30. október til 13. nóvember 2026 í Dakar í Senegal 2026. Til stóð að halda leikana þar árið 2022 en sökum COVID-19 var ákveðið að fresta þeim um fjögur ár.
Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 14 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðinna. Hugmyndina á Jacues Rogge forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001. Árið 2007 var ákveðið að koma á fót Ólympíuleikum ungmenna og fóru fyrstu leikarnir fram árið 2010 í Singapore.
