Sumarólympíuleikarnar 2028 verða haldnir dagana 14.-31. júlí í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Um Sumarólympíuleikana:
Sumarólympíuleikarnir eru einn stærsti einstaki alþjóðlegi íþróttaviðburðurinn sem haldinn er á fjögurra ára fresti, öðru nafni nefndir Leikar Ólympíuöðunnar. Leikarnir færast á milli heimsálfa og borga í hvert sinn sem þeir eru haldnir. Það að borg er kosin (borgir þurfa að sækja um að halda leikana) er jafnan talin mikill heiður og yfirleitt litið á það sem mikla lyftistöng fyrir borgina, samfélagið og þjóðina að hafa verið valin til að halda leikana.
