Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur í samstarfi við Sundsamband Íslands fyrir landsátakinu Syndum dagana 1.–30. nóvember 2026. Átakið er heilsu- og hvatningarverkefni sem höfðar til allra landsmanna og hvetur til aukinnar daglegrar hreyfingar með sundi.
Sund er hreyfing sem hentar öllum og styrkir bæði líkamlega heilsu og vellíðan. Þátttakendur skrá sundvegalengdir sínar á einfaldan hátt og saman safnast metrarnir í heildarmarkmið þar sem synt er hringinn í kringum Ísland. Með þátttöku gefst jafnframt kostur á að vinna vinninga.
Skráðu þig inn og skráðu þína sundvegalengd hér: https://www.syndum.is/
