Fara í efni

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (#BeActive) standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og mennta- og barnamálaráðuneytið fyrir málþinginu Virk alla ævi: Þátttaka kvenna í íþróttum miðvikudaginn 30. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á málþinginu verður sjónum beint að stöðu og þátttöku kvenna í íþróttum á ólíkum æviskeiðum.

Málþingið er hluti af dagskrá Íþróttaviku Evrópu og á því verður fjallað um hvað tölfræðin segir um þátttöku kvenna í íþróttum, raddir ungs fólks fá að heyrast og sérfræðingar fara yfir hvernig Ísland stendur í alþjóðlegum samanburði. Einnig verða pallborðsumræður um reynslu af þátttöku í íþróttastarfi og leiðir til að efla þátttöku kvenna í íþróttum alla ævi.

Málþingið er opið öllum áhugasömum og þátttaka er án endurgjalds. Léttar veitingar verða í boði.

Hægt er að skrá sig hér

Dagskráin er hér:

/cdn/media/Frettamyndir/Virk-alla-aevi-dagskra-vefur.png?v=1790621741