Hlutverk Afreksmiðstöðvar Íslands er að hafa yfirumsjón með öllu sem lýtur að afrekssmálum ÍSÍ og einstakra sérsambanda ásamt því að sjá um undirbúning og mál er varða Ólympíuleika og önnur alþjóðamót sem ÍSÍ tekur þátt í.
Ólympíuleikar
Ólympíuleikar eru stærsta og mesta íþróttahátíð heimsbyggðarinnar.


Ólympíuleikar ungmenna
Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára.


Smáþjóðaleikar
Smáþjóðaleikarnir (Games of the Small States of Europe) eru íþróttakeppni þeirra smáþjóða Evrópu sem eru með innan við eina milljón íbúa.


Evrópuleikar
Evrópuleikarnir (European Games) fara fram á fjögurra ára fresti að sumri til. Keppt er í um tuttugu íþróttagreinum.


Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (The European Youth Olympic Festival, EYOF) er íþróttahátíð fyrir evrópsk ungmenni á aldrinum 14-18 ára.




