Fara í efni

Lífshlaupið

Lífshlaupið er verkefni sem hvetur landsmenn til meiri daglegrar hreyfingar. Þátttaka snýst um að nýta þau tækifæri sem þegar eru til staðar – í vinnu, skóla, frítíma og við val á ferðamáta. Verkefnið er fyrir alla, óháð aldri eða getustigi.
Nánar á lifshlaupid.is

Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna hjálpar þér að komast í vinnuna á virkan hátt. Í þrjár vikur í maí eru þátttakendur hvattir til að hjóla, ganga, hlaupa eða nota almenningssamgöngur til og frá vinnu. Þannig styrkirðu heilsuna, sparar peninga og velur umhverfisvænni ferðamáta.

Nánar á hjoladivinnuna.is 

Göngum í skólann

Göngum í skólann hvetur börn til að velja virkan og öruggan ferðamáta til og frá skóla. Markmiðið er að auka hreyfingu, bæta heilsu og draga úr umferðarþunga. Aukin hreyfing bætir lífsgæði nemenda og eflir félagsleg tengsl.

Nánar á gongumiskolann.is

Hjólum í skólann

Hjólum í skólann hvetur nemendur og starfsfólk til að velja virkan ferðamáta.
Ganga, hjóla, hlaupa eða nota línuskauta eykur hreyfingu, styrkir líkama og sál – og er um leið umhverfisvænt og hagkvæmt.

Nánar á hjolumiskolann.is

Íþróttavika Evrópu

Íþróttavika Evrópu hvetur alla til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Þátttakendur geta tekið þátt óháð aldri, bakgrunni eða getustigi og notað vikuna til að prófa nýja íþróttir og hreyfingu undir slagorðinu #BeActive.

Nánar á beactive.is

Syndum

Syndum hvetur landsmenn til að hreyfa sig oftar með sundi og öðrum vatnsleikjum. Á vefsíðunni finnur þú skemmtilegar upplýsingar um sund og sundlaugar til að gera hreyfinguna auðvelda og skemmtilega.

Nánar á syndum.is

Bjartur lífsstíll 60+

Bjartur lífsstíll stuðlar að aukinni líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu með samstarfi við sveitarfélög og lykilstarfsfólk í heilsueflingu fyrir fólk 60 ára og eldri. 

Nánar á bjartlif.is

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Ólympíuhlaup ÍSÍ, sem áður hét Norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólastarfi fjölmargra grunnskóla frá árinu 1984 þegar hlaupið var haldið í fyrsta sinn. Þessi viðburður er tengdur Íþróttaviku Evrópu / BeActive.

Markmið Ólympíuhlaups ÍSÍ er að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla þannig að betri heilsu, vellíðan og jákvæðum lífsvenjum. Áður gátu nemendur valið á milli 2,5 km, 5 km og 10 km vegalengda, en nú hafa skólar aukið svigrúm til að ákveða vegalengdir sjálfir með hliðsjón af aðstæðum og umhverfi hvers skóla.

Að hlaupi loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem fram kemur fjöldi þátttakenda og samanlögð vegalengd sem hlaupin var. Áherslan er fyrst og fremst á holla hreyfingu, þátttöku allra og að nemendur njóti þess að taka þátt.

Grunnskólar um allt land geta staðið fyrir Ólympíuhlaupi ÍSÍ fram til áramóta og skráð þátttakendur í gegnum skráningarformið hér að neðan. Allir skólar sem skrá þátttöku fyrir 9. október fara í pott þar sem dregið verður um 150.000 króna gjafabréf frá Altis.

Skráning í Ólympíuhlaupið 2026