Fara í efni
Verndun og velferð í íþróttum

Forvarnir, fræðsla og gögn

Verndun og velferð felst ekki aðeins í að bregðast við atvikum. Markmiðið er einnig að fyrirbyggja skaðlega hegðun og byggja upp örugga menningu þar sem öll vita hvaða hegðun er ásættanleg og hvert hægt er að leita.

Lágmarksforvarnir íþróttafélagsfélags

Íþróttafélag ætti að:

  • hafa skýr hegðunarviðmið fyrir iðkendur, þjálfara, starfsfólk, stjórnendur og sjálfboðaliða;
  • kynna tilkynningarleiðir reglulega og hafa þær sýnilegar á vef félagsins;
  • tilnefna og birta upplýsingar um ábyrgðarmann verndunar og velferðar;
  • tryggja fræðslu fyrir þau sem vinna með börnum og viðkvæmum einstaklingum;
  • nota vandað ráðningarferli, afla meðmæla og sakaskrárupplýsinga þegar það á við;
  • skilgreina reglur um ferðalög, gistingu, búningsaðstöðu og stafræn samskipti;
  • huga að hæfilegu æfinga- og keppnisálagi, hvíld og endurheimt;
  • yfirfara innri viðbragðsáætlun, tengiliði og vefslóðir að minnsta kosti árlega.

Fyrir iðkendur og aðstandendur

Einelti í íþróttum

Fræðsla, forvarnir og aðgerðaráætlun ÍSÍ vegna eineltis í íþróttum.
Opna fræðsluefni um einelti í íþróttum

Kynferðisleg áreitni og ofbeldi

Fræðsluefni ÍSÍ um kynferðislega áreitni og ofbeldi í íþróttum.
Opna fræðsluefni um kynferðislega áreitni og ofbeldi

Fyrir starfsfólk, sjálfboðaliða og stjórnir

Verkfærakista samskiptaráðgjafa

Viðbragðsáætlun, fylgiskjöl, leiðbeiningar um ráðningar og sakaskrárupplýsingar, tilkynningar til barnaverndar og annað hagnýtt efni.

Stefna ÍSÍ um verndun og velferð

Í stefnunni eru skilgreiningar, viðmið og upplýsingar um ábyrgð innan íþróttahreyfingarinnar.

Námskeiðið Barnavernd hjá æskulýðsvettvanginum.

Netnámskeið fyrir starfsólk og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Aðrir gagnlegir tenglar