Úthlutað hefur verið starfslaunum afreksíþróttafólks fyrir tímabilið 1. nóvember 2026 til ársloka 2027. Þetta er annað árið sem íþróttafólk í fremstu röð fær laun fyrir vinnu sína. Fyrstu starfslaununum var úthlutað í desember í fyrra og urðu þau að veruleika með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytisins sem jók framlög sín til afreksíþrótta.
Markmiðið er að gera íþróttafólkinu kleift að helga sig íþrótt sinni og keppa við þau bestu á alþjóðavettvangi án þess að þurfa að velja á milli íþróttarinnar og afkomunnar.
Alls bárust umsóknir frá 22 sérsamböndum fyrir 102 einstaklinga. Sótt var samhliða um starfslaun og einstaklingsstyrki úr Afrekssjóði ÍSÍ. Sérsamböndin forgangsröðuðu umsækjendum sínum og var sú röðun höfð til hliðsjónar við mat á umsóknum.
Í ár hljóta 29 einstaklingar og tvö pör starfslaun. Þau koma úr 11 íþróttagreinum. Úthlutun byggir á faglegu heildarmati samkvæmt úthlutunarreglum ÍSÍ. Þar er meðal annars horft til árangurs á stórmótum síðustu tveggja ára, framfara, umgjarðar og möguleika á árangri á stórmótum á komandi árum. Hópurinn getur því breyst á milli ára.
Auk launanna fær íþróttafólkið faglegan stuðning frá fagteymi Afreksmiðstöðvar Íslands, svo sem á sviði sálfræði, sjúkraþjálfunar, næringarfræði og styrktarþjálfunar. Íþróttafólkinu er raðað í A-, B- eða C-flokk og fer umfang stuðningsins eftir flokki.
„Stofnun Afreksmiðstöðvar Íslands og innleiðing starfslauna eru markverð skref sem hafa skapað mikilvæga umgjörð fyrir íslenskt afreksíþróttafólk til að ná sem bestum árangri. Svo halda megi áfram á þeirri braut þarf aukinn stuðning, bæði frá hinu opinbera og atvinnulífinu, því fjárfesting í íslensku afreksíþróttafólki skilar sér margfalt til baka,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
„Reynslan af fyrsta árinu sýnir að starfslaunin skipta gríðarlega miklu máli. Þau létta undir með íþróttafólkinu svo það geti einbeitt sér betur að íþrótt sinni, undirbúningi og því að ná árangri. Samhliða þeim nýtur það stuðnings fagteymis AMÍ og gott samstarf við sérsambönd og þjálfara skiptir þar miklu. Það er mikið af efnilegu íþróttafólki á Íslandi og markmið okkar er að fleiri komist í þennan hóp á komandi árum,“ segir Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri Afreksmiðstöðvar Íslands.
Nánar um starfslaun afreksíþróttafólks og úthlutunarreglur: https://www.isi.is/afreksithrottir/sjodir/starfslaun-afreksithrottafolks
Nánari upplýsingar veitir Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri Afreksmiðstöðvar Íslands, kristino@isi.is / 696 3028.
