Fara í efni

Fréttir

12. okt. 2026

Vel sóttur sambandsráðsfundur UMFÍ á Ísafirði

Um 70 manns sóttu 46. sambandsráðsfund UMFÍ á Ísafirði á laugardag, þar á meðal formenn og framkvæmdastjórar allra íþróttahéraða landsins. Samstaða og sameiginleg stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ settu svip sinn á fundinn.
Viðburðir
11. okt. 2026

ÍSÍ á fundum og vinnustofum evrópskra Ólympíunefnda í Split

Undirbúningur fyrir stórmótin fram undan, EYOF og Evrópuleikana 2027 og Ólympíuleikana í Los Angeles 2028, var efst á baugi þegar evrópskar Ólympíunefndir komu saman í Split dagana 9. og 10. október.
Viðburðir
10. okt. 2026

Um 50.000 manns tóku þátt í Íþróttaviku Evrópu

Íþróttavika Evrópu #BeActive fór fram dagana 23. til 30. september. Um 500 hreyfi- og heilsutengdir viðburðir voru haldnir víðsvegar um landið og er áætlað að um 50.000 manns hafi tekið þátt.
Viðburðir
8. okt. 2026

Kakadúar í aðalhlutverki í merkjum Brisbane 2032

Skipuleggjendur Ólympíuleikanna og Paralympics í Brisbane 2032 hafa afhjúpað merki leikanna. Í báðum merkjunum er kakadúinn í aðalhlutverki, fjörugur og forvitinn fugl sem á heima í Queensland og víðar í Ástralíu.
Almennar fréttir Viðburðir
8. okt. 2026

Óskað eftir tilnefningum til Norræns styrks fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk

ÍSÍ óskar eftir tilnefningum frá sérsamböndum vegna Norræns styrks fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk. Styrkurinn nemur 16.000 evrum eða um 2,5 milljónum króna og er fjármagnaður af Lars Weinaa Foundation.
Almennar fréttir
7. okt. 2026

Nýtt fræðslusafn fyrir íþróttahreyfinguna

Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík hefur opnað nýtt fræðslusafn á netinu sem auðveldar íþróttahreyfingunni að nálgast fjölbreytt fræðsluefni. Þar má finna efni sem starfsfólk deildarinnar hefur unnið sjálft eða í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ, sérsambönd, ÍBR og fleiri.
Fræðsla
2. okt. 2026

Samtal og samkennd í forgrunni á Forvarnardeginum

Forvarnardagurinn var haldinn í gær í 21. sinn undir yfirskriftinni Samtal og samkennd. Meðal þeirra sem fluttu ávörp á málþingi dagsins í Verzlunarskóla Íslands voru Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og María Heimisdóttir landlæknir. Einnig fluttu tveir nemendur skólans erindi, þau Edda Sól Óladóttir og Magnús Geir Björgvinsson.
Viðburðir Fræðsla
2. okt. 2026

Umsóknarfrestur í Ferðasjóð íþróttafélaga er til 11. janúar 2027

Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er nú opið fyrir umsóknir um styrki vegna styrkhæfra keppnisferða innanlands á árinu 2026. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 11. janúar 2027.
Almennar fréttir
30. sep. 2026

„Samtal og samkennd“: Málþing Forvarnardagsins í beinni útsendingu

Málþingið „Samtal og samkennd“ sem haldið er í tengslum við Forvarnardaginn, fer fram fimmtudaginn 1. október frá kl. 11:30-12:30 og verður streymt beint á netinu.
Fræðsla
1 2 3 ... 37