Laugardaginn 9. maí sl. fór fram 33. þing Keilusambands Íslands (KLÍ) og var það að þessu sinni haldið í boði Íþróttafélags Asparinnar í Sigtúni í Reykjavík. Þingið var vel sótt og alls 23 fulltrúar aðildarfélaga skráðir til þings.
Á dagskrá þingsins voru hefðbundin þingstörf. Skýrsla stjórnar, reikningar sambandsins og fjárhagsáætlun voru lögð fram og umræður sköpuðust um þau mál.
Þingstörfum var stýrt af Hafsteini Pálssyni frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og skemmtilegt er að segja frá því að af 33 þingum Keilusambands Íslands hefur Hafsteinn stýrt þingi 31 sinnum. Af þessu tilefni veitti Valgerður Rún Benediktsdóttir, formaður KLÍ, Hafsteini Gullmerki Keilusambands Íslands í viðurkenningarskyni fyrir ómetanlega aðstoð hans og langa samfylgd með starfi sambandsins.
Nánari upplýsingar um þingið, þinggerð og önnur þingskjöl er að finna hér:
https://www.kli.is/2026/05/09/33-thing-kli-2026/

