Fara í efni

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði í dag 26 milljónum króna til 57 verkefna víðs vegar um landið. Markmiðið er að fá fleiri börn og ungmenni til að taka þátt í íþróttastarfi.

Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á börn með fötlun, börn af tekjulægri heimilum og börn af erlendum uppruna. Af verkefnunum sem fá styrk að þessu sinni snúa 18 að börnum með fötlun, 11 að börnum af tekjulægri heimilum og 8 að börnum af erlendum uppruna. Önnur 20 verkefni ná til allra áhersluflokkanna.

Styrkirnir dreifast um allt land:

  • Höfuðborgarsvæðið: 19 verkefni – 8,4 m.kr.
  • Suðurnes: 3 verkefni – 1,4 m.kr.
  • Vesturland: 8 verkefni – 2,95 m.kr.
  • Vestfirðir: 3 verkefni – 1,15 m.kr.
  • Norðurland vestra: 5 verkefni – 2,6 m.kr.
  • Norðurland eystra: 6 verkefni – 2,25 m.kr.
  • Austurland: 4 verkefni – 2,2 m.kr.
  • Suðurland: 7 verkefni – 2,05 m.kr.
  • Landsverkefni (Allir með): 2 verkefni – 3,0 m.kr.

Hvatasjóðurinn tók til starfa í lok árs 2024 og úthlutar að jafnaði þrisvar á ári. Þetta er önnur úthlutun ársins.

Sjá úthlutunina eftir verkefnum

Nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknarferlið eru á vef Svæðisfulltrúa íþróttahreyfingarinnar.