Fara í efni

Í dag eru liðin 70 ár frá því íslenskt kvennalandslið lék sinn fyrsta landsleik þegar kvennalandslið Íslands í handknattleik mætti Noregi í Ósló 19. júní 1956. Leikurinn var liður í undirbúningi fyrir Norðurlandamótið í Finnlandi síðar sama sumar og markaði upphaf landsliðssögu íslenskra kvenna í handknattleik. Leikið var utanhúss á grasi og lauk leiknum með 10–7 sigri Noregs.

Af þessu tilefni bauð Gerða Jónsdóttir fyrrverandi samherjum sínum úr landsliðinu 1956, þeim Helgu Emilsdóttur, Geirlaugu Karlsdóttur og Sigríði Kjartansdóttur, heim til sín. Konurnar hafa haldið góðu sambandi í gegnum tíðina og reyna að hittast ár hvert 19. júní til að rifja upp minningar frá þessum merka kafla í íslenskri íþróttasögu.

Aðsend mynd - RÚV / Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, litu við hjá þeim af þessu tilefni og færðu þeim þakklætisvott fyrir framlag þeirra til íslenskra íþrótta.

Þær konur sem skipuðu fyrsta landslið Íslands í handknattleik árið 1956 voru meðal brautryðjenda íslenskra kvennaíþrótta. Með þátttöku sinni skrifuðu þær fyrsta kaflann í sögu íslenskra kvennalandsliða og ruddu brautina fyrir komandi kynslóðir.

ÍSÍ þakkar þessum brautryðjendum fyrir ómetanlegt framlag til íslenskra íþrótta og óskar þeim innilega til hamingju með þessi merku tímamót.

RÚV tók skemmtilegt viðtal við landsliðskonurnar í tilefni tímamótanna þar sem þær rifjuðu upp fyrstu landsleikina, ferðina til Noregs og vináttuna sem hefur staðið í sjö áratugi. Hægt er að lesa viðtalið hér á vef RÚV.