Nú er aðeins einn mánuður þar til Ólympíuleikar ungmenna hefjast í Dakar í Senegal. Leikarnir fara fram dagana 30. október til 13. nóvember og verða sögulegir þar sem þetta er í fyrsta sinn sem íþróttaviðburður á vegum Alþjóða-ólympíunefndarinnar er haldinn í Afríku.
Íslendingar eiga þrjá keppendur á leikunum að þessu sinni. Það eru sundfólkið Alexander Ari Andrason og Sólveig Freyja Hákonardóttir ásamt skylmingamanninum Ara Vilberg Jónassyni sem munu keppa fyrir hönd Íslands.
Eftirvæntingin eykst nú með hverjum deginum og af því tilefni hefur Alþjóða-ólympíunefndin birt myndband með stuðnings- og hvatningarkveðjum til þátttakenda á leikunum. Myndbandið gefur innsýn í þá einstöku upplifun sem bíður unga íþróttafólksins þegar fulltrúar hvaðanæva að úr heiminum koma saman eftir aðeins fjórar vikur.
