Afreksmiðstöð Íslands stendur fyrir Afreksbúðum fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk innan sérsambanda ÍSÍ. Fyrsti fræðslufyrirlesturinn að þessu sinni fer fram laugardaginn 14. nóvember kl. 12:00–13:30 í fundarsal B og C á 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.
Afreksbúðirnar eru ætlaðar íþróttafólki á aldrinum 15 til 20 ára, árgöngum 2006 til 2011, sem er meðal annars í hæfileikamótun, afrekshópum og unglingalandsliðum sérsambanda. Hafa skal í huga að búðirnar eru ætlaðar ungu íþróttafólki á afreksstigi í sinni íþróttagrein.
Sérsambönd bera ábyrgð á skráningu þátttakenda og hafa fengið sendar upplýsingar um hana. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við sitt sérsamband.
Fyrirlesarar 14. nóvember
- Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, fjallar um afreksmanneskjuna og hvernig við byggjum upp sterkan einstakling.
- Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður, fjallar um hvernig best er að koma fram í fjölmiðlum og veitir þátttakendum dýrmæta innsýn og hagnýt ráð.
