Fara í efni

Allir með leikarnir fara fram í Laugardalshöll laugardaginn 31. október frá kl. 10:00 til 14:00. Leikarnir eru íþróttahátíð fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir eða stuðningsþarfir og í ár er hrekkjavökuþema. Við hvetjum öll til að mæta í búningi!

Á leikunum fá börnin tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi. Þannig kynnast þau ólíkum íþróttum og fá færi á að finna íþrótt sem vekur áhuga þeirra.

Áhersla er lögð á leik, gleði og þátttöku á eigin forsendum. Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af íþróttum og öll eru velkomin.

Það verður sannkallað íþróttapartý í höllinni. Landsliðsfólk kíkir í heimsókn og heilsar upp á gesti, Sóli og Sóla verða á svæðinu, DJ heldur uppi stuðinu og boðið verður upp á pizzuveislu.

Hagnýtar upplýsingar

  • Hvenær: Laugardaginn 31. október, kl. 10:00–14:00
  • Hvar: Laugardalshöll
  • Aldur: 6–16 ára
  • Þátttökugjald: 1.500 kr.

👉 Skráning á Abler

Hluti af verkefninu Allir með
Leikarnir eru hluti af Allir með, samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambands fatlaðra. Markmið verkefnisins er að fjölga tækifærum barna með fatlanir til að stunda íþróttir.

Við hlökkum til að sjá sem flest börn í Laugardalshöll þann 31. október!

/cdn/media/Frettamyndir/859978627_122263975304329235_1792933978378154886_n.jpg?v=1792760033