Fara í efni

Ari keppti fyrir Íslands hönd í skylmingum með höggsverði á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar á föstudaginn.

Keppt var í tveimur riðlum og vann Ari eina viðureign af sex í sínum riðli. Að riðlakeppninni lokinni tók við útsláttarkeppni og endaði Ari í 11. sæti. Hann fékk þarna góða reynslu af alþjóðlegri keppni sem á eftir að nýtast honum vel í framtíðinni.

Hann var síðan stoltur fánaberi Íslands á lokahátíð leikanna, þar sem íþróttafólk allra þátttökuþjóða kom saman til að kveðja Dakar.

Eftirminnilegir leikar

Síðustu fulltrúar Íslands á leikunum komu heim í gær, ánægðir eftir vel heppnaða leika undir merkjum Afríku.

Þetta er í fyrsta sinn sem íþróttaviðburður á vegum Alþjóða-ólympíunefndarinnar er haldinn í Afríku. Rúmlega 2.600 ungmenni frá yfir 200 þjóðum kepptu í 25 íþróttagreinum í Dakar, Diamniadio og strandbænum Saly.

Aðstæður voru gjörólíkar því sem íslenski hópurinn á að venjast. Hitinn var mikill og töluverð viðbrigði fyrir íþróttafólk sem kemur beint úr íslensku nóvemberveðri. Allt var þetta hluti af upplifuninni og hópurinn tók nýjum aðstæðum með jákvæðni og opnum huga.

Senegalsk menning og gestrisni heimamanna, teranga, settu sterkan svip á leikana. Við setninguna hvatti Mamadou Diagna Ndiaye, forseti skipulagsnefndarinnar, keppendur til að líta ekki á andstæðinginn sem óvin heldur sem þann sem hjálpar þeim að verða betri, og að þora að eignast vini. Íslensku keppendurnir kynntust jafnöldrum frá öllum heimshornum og fengu að upplifa hvernig íþróttir og menning fara hönd í hönd.

ÍSÍ óskar Ara, Alexander og Sólveigu Freyju til hamingju með leikana og þakkar þeim, þjálfurum og fararstjórum fyrir að vera góðir fulltrúar Íslands í Dakar.

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/aaf6fc8a-cb06-4df8-8fb5-9f4db57a6e6f.JPG?v=1794844894

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/69708dbb-0c11-4d1c-ae7c-6bb7efec49c9.JPG?v=1794844851

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/edf33b1e-6ca7-4190-8111-2d7c09284ff8.JPG?v=1794844827

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/02b2f640-f000-40be-a0dc-e78929b500fd.JPG?v=1794844847

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/be8a6ed4-adb5-4e05-a984-990aa986cadb.JPG?v=1794845019

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00013.jpeg?v=1794142278

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00012.jpeg?v=1794142277

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00007.jpeg?v=1794142274

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/image00003.jpeg?v=1794845257

Fleiri myndir frá leikunum má finna í myndasafni ÍSÍ.