Fara í efni

Skylmingamaðurinn Ari Vilberg Jónasson keppir í höggsverði karla á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar á morgun, föstudaginn 13. nóvember. Ari kom til Senegal fyrir nokkrum dögum með Gunnari Agli Ágústssyni þjálfara sínum. Brynja Guðjónsdóttir aðalfararstjóri tók á móti þeim en hún hefur verið í Dakar frá upphafi leikanna.

Ferðin hefur ekki gengið alveg snurðulaust fyrir sig. Farangur Ara, þar á meðal hluti af skylmingabúnaðinum, skilaði sér ekki í Ólympíuþorpið fyrr en í morgun og það riðlaði æfingunum töluvert. Það var því mikill léttir þegar hann kom loksins. Í dag tekur Ari fyrstu æfinguna í keppnismannvirkinu.

Þegar þeir komu gekk hitabylgja yfir Dakar með 35–37 stiga hita en vindurinn hefur bjargað miklu. Þeir eru að venjast hitanum og eru ánægðir með aðstöðuna og matinn í þorpinu.

Keppnin á morgun
Keppni í höggsverði karla hefst kl. 9 en nákvæmari tímasetningar liggja ekki fyrir. Senegal er á sama tímabelti og Ísland svo tímarnir eru þeir sömu hér heima.

Skylmingarnar eru síðasta keppnisgrein leikanna og annað kvöld tekur Ari svo þátt í lokahátíðinni sem fulltrúi Íslands.

Við óskum Ara góðs gengis.

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/79556994-497e-46ef-8743-3946a67640c6.JPG?v=1794484087
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/30b93167-75e5-4c10-817f-619e9408ae07.JPG?v=1794484086

 

/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/9a0bc238-af42-439e-af0d-8cc63d832726.JPG?v=1794484086
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/b5c0c099-e577-4ce0-9278-a13b877899ac.JPG?v=1794484084
/cdn/media/Frettamyndir/Dakar-2026/ba726f00-b38c-4c43-b189-7878ea927587.JPG?v=1794484084