Fara í efni

Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) hélt ársþing sitt í Valhöll á Eskifirði laugardaginn 11. apríl síðastliðinn. Mæting var góð og sátu alls 53 fulltrúar þingið, frá 29 aðildarfélögum sambandsins.Anita Ösp Ómarsdóttir gegndi embætti þingforseta og stýrði hún þinginu af fagmennsku.

Fáar tillögur lágu fyrir að þessu sinni. Reikningar UÍA voru samþykktir ásamt fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og samkvæmt efnahagsreikningi stendur sambandið á tryggum rekstrargrunni.

Íþróttamaður UÍA og glímusigrar

Hákon Gunnarsson glímumaður var kjörinn íþróttamaður UÍA. Sama dag og þingið fór fram varð hann glímukóngur Íslands og varði þar með titil sinn.

Kristín Embla Guðjónsdóttir, sem einnig kemur úr aðildarfélagi UÍA, varð glímudrottning Íslands og varði hún sömuleiðis sinn titil.

Stjórn UÍA endurkjörin

Stjórn UÍA var kjörin til áframhaldandi starfa og skipa hana:

  • Benedikt Jónsson, formaður

  • Þuríður Ragnheiður Sigurjónsdóttir

  • Þórunn María Þorgrímsdóttir

  • Kristófer Einarsson

  • Guðjón Magnússon

Varastjórn skipa:

  • Gunnar Gunnarsson

  • Eyþór Stefánsson

  • Ásta Kristín Michelsen

Fulltrúi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á þinginu var Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ.

Einnig sátu þingið svæðisfulltrúar á Austurlandi, þær Jóhanna Íris Ingólfsdóttir og Rebekka Rán Egilsdóttir, og fluttu þær kynningar um störf sín og helstu verkefni á svæðinu.