Aðalfundur Umf. Breiðabliks fór fram í Smáranum 5. maí síðastliðinn. Á fundinn mættu Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson formaður Heiðursráðs ÍSÍ og sæmdu, fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ, Ásgeir Baldursson, fráfarandi formann Umf. Breiðabliks, Gullmerki ÍSÍ fyrir hans góðu störf fyrir félagið.
Í tilnefningu UMSK til heiðursviðurkenningarinnar segir: Ásgeir Baldursson sat í aðalstjórn Breiðabliks um 12 ára skeið. Hann var varaformaður félagsins í þrjú ár og síðustu fjögur ár var hann formaður félagsins. Ásgeir er ákveðinn og fylginn sér og hefur haldið vel á málum félagsins út á við, og verið sameiningartákn innan þess. Hann fylgist vel með öllu því sem fram fer innan félagsins og er gjarna mættur á leiki og mót til að hvetja sitt fólk áfram. Ásgeir er uppalinn Breiðabliksmaður, lék knattspyrnu upp allra yngri flokka félagsins og á að baki 145 leik og 19 mörk fyrir meistaraflokk félagsins í knattspyrnu. Þá á hann að baki 10 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Ásgeir hefur reynst Breiðabliki verðmætur sjálfboðaliði sem lagt hefur tíma, kraft og metnað til þess að gera félagið sitt að öflugri og styrkri stoð í samfélagsins í Kópavogi. Framlag hans er félaginu ómetanlegt.
Nýr formaður félagsins var kjörinn Pétur Hrafn Sigurðsson sem setið hefur í aðalstjórn félagsins frá árinu 2022. Þar áður gegndi hann formennsku í körfuknattleiksdeild Breiðabliks um árabil.
