Háskólinn í Reykjavík (HR) og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hafa undirritað samstarfssamning um aukið samstarf við afreksíþróttafólk í námi. Samningurinn snýr meðal annars að afrekshópi HR sem býður afreksíþróttafólki aukinn sveigjanleika til að samræma háskólanám og íþróttaiðkun á afreksstigi.
Afrekshópur HR hefur verið starfræktur um árabil og reynst mikilvægt úrræði fyrir afreksíþróttafólk. Með samstarfinu vill ÍSÍ styðja við áframhaldandi þróun verkefnisins og auka sýnileika þess innan sérsambanda sinna og íþróttahreyfingarinnar.
Samningurinn kveður á um að ÍSÍ mun kynna sérstaklega afrekshóp HR og þau úrræði sem standa afreksíþróttafólki til boða fyrir sérsamböndum sínum og styðja við miðlun upplýsinga um hópinn innan íþróttahreyfingarinnar. Markmiðið er að fleiri íþróttamenn á afreksstigi geti byggt upp menntun samhliða íþróttaferli sínum.
Samstarfið fellur vel að afreksstefnu ÍSÍ þar sem lögð er áhersla á að skapa afreksíþróttafólki sem bestar aðstæður til að ná árangri og styðja við heildstæða uppbyggingu þess, bæði innan íþrótta og utan þeirra. Þar gegnir menntun mikilvægu hlutverki samhliða íþróttaferli einstaklinga.
Nánari upplýsingar um afrekshópinn má finna hér:
Afrekshópur – Sveigjanleiki í námi

